Segðu ekki allt sem þú hugsar en hugsaðu allt sem þú segir!!

Sigrún Ágústa Erlingsdóttir

16.07.2007 23:50:28 / sigrunae

Nýtt blogg

Jæja mín kæru þá er ég komin með nýtt blogg og ég ákvað að hafa það læst í þetta skiptið ;)

slóðin er www.123.is/sigrunagusta og lykilorðið er nafnið á hundi sem við áttum í sveitinni í 15 ár...það var án efa besti hundur sem til hefur verið...

Endilega ekki vera feimin við að biðja um aðgang :) ég er bara að þessu til þess að þeir sem ég þekki ekki neitt séu að skoða síðuna mína :) 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 16:27:03 / sigrunae

Páskafrí...

Halló góðan daginn gott fólk!!
Það er nú lítið að frétta af mér um þessar mundir...ég er bara að reyna að vinna í lokaverkefninu mínu sem gengur svona lala...en þetta fer að taka enda og núna eru bara 16 dagar í að við Elvar fáum íbúðina okkar afhenda...

Ég var í Hveragerði hjá pabba og Hröbbu vikuna fyrir páska og það var feikna fjör í Kambahrauninu, Bergþór bróðir var þar líka og svo komu Þorsteinn bróðir og Heiður með stelpurnar sínar litlu...Svo eftir úrslita X-factor þáttinn fór ég í bæinn og þegar ég kom þangað var Elvar kominn í Skipholtið og var búinn að hlýja sængina fyrir mig :) Við fórum svo norður á Árskógsand seinni partinn daginn eftir og það var æði að koma þangað eins og venjulega...Eftir páskana vorum við Elvar að stússast í sambandi við íbúðina daginn út og daginn inn...það er ótrúlegt hvað allt svona stúss tekur mikinn tíma og mikla orku frá manni, en núna ætti allavega nokkurn veginn allt að vera á hreinu svona í bili, svo ég get einbeitt mér að lærdómnum...ekki veitir af hehemmm...það er ótrúlegt hvað maður getur misst metnaðinn svona á lokasprettinum úfff...en eins og ég hef svo oft sagt áður: ÞETTA REDDAST ;) En á fimmtudaginn eftir páska var konan hans afa jörðuð á Akureyri og þá komu mamma og Pálmar norður...þau komu inn á Árskógsand og gistu hjá tengdó sem var ekkert smá gaman :) þetta var í annað sinn sem þau hittast, en í fyrsta skiptið sem ég er með þegar þau hittast...mamma og Erla ná ekkert smá vel saman og mér finnst það frábært :) Ég fór svo suður á laugardaginn til að fara að læra :(  

Elvar er samt ennþá fyrir norðan í fríi og það er frekar fúlt að vera í bænum að læra á meðan hann er þar...mig langar ekkert smá mikið að vera hjá honum, en svona er lífið...það fer að koma að því að við verðum meira saman og ég get varla beðið eftir því...

Látum þetta duga í bili...Kveðja Sigrún Ágústa ;) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 12:07:21 / sigrunae

Bara 34 dagar í íbúðina, 51 dagur í skólalok, 57 dagar í Marmaris á Tyrklandi!!

Þetta er ótrúlega fljótt að líða núna og eins og fyrirsögnin segir er ekki langt í 3 merka atburði í mínu lífi ;) 
En það sem hefur aðallega verið að gerast undanfarið hjá mér er:

  • Vann í strætó í u.þ.b. 38 klst við það að telja fólk inn og út á hverri stoppistöð fyrir sig í síðustu og þarsíðustu viku. Við útskriftarnemar fengum þetta verkefni til að ná nú að safna okkur einhverjum pening fyrir Tyrklandsferðina. Þetta var svosem fínt að sitja bara í strætó með i-podinn í eyrunum, telja og hugsa um allt og ekki neitt :) 
  • Ómar og Karen komu til mín 15 mars, þau ásamt flestum í ME þar sem ME var að keppa í Gettu betur. Við fórum á Austfirðingaball á Players á föstudagskvöldinu og það var hörkustuð ;) alveg ótrúlegt hvað maður þekkti marga þarna!! enda náttla austfirðingaball hehe :)
  • Elvar kom til mín í 4 daga í síðustu viku og náðum við að gera ýmislegt á þeim tíma, t.d. klára að velja allt endanlega inn á baðið, þ.e. handklæðaofn, blöndunartæki fyrir baðvaskinn og sturtuna, baðvaskinn og eitthvað fleira.
  • Svo er ég búin að fara með strætó útúm allt varðandi íbúðina, t.d. að klára að gera tilboð við Byko og leggja þar með lokahönd á valið okkar. En gólfefnavalið er ennþá vandamál, en flísarnar sem við vorum búin að velja á gólfin voru aðeins öðruvísi en við héldum þegar maður sá þær í réttu ljósi :( en þetta er svolítið stress því það er nú þegar byrjað að vinna í íbúðinni okkar á fullu og þá má nú ekki standa á okkur!! Þetta er bara svolítið erfitt þegar Elvar er á sjó, en ég þakka nú bara Guði fyrir þetta strætóverkefni því þá lærði ég á mjög margar strætóleiðir sem er alveg búið að bjarga mér núna ;)
  • Ég er búin að taka 4 viðtöl fyrir lokaverkefnið og á 2 eftir sem ég tek á morgun!
  • Ég hélt einnig 2 tupperware kynningar í síðustu viku og þetta voru með þeim betri kynningum sem ég hef haldið, en báðir gestgjafarnir náðu flottustu sölutengdu gjöfinni sem í boði var :) Svo á eftir þá fæ ég vörurnar og fer að flokka þetta allt saman!!
  • Ég hef ekki verið dugleg við að hafa samband við vinkonurnar, en það virðist vera svona mikið að gera hjá öllum...Við Elvar fórum reyndar í mat til Hrannar og Arnars síðasta laugardagskvöld og svo buðu Sigga Eva og Árni mér í mat á mánudaginn...Takk fyrir það elskurnar mínar :* svo er það næst á dagskrá að reyna að hitta hana Freyju mína sem var að byrja að leigja sér nýja íbúð og Guðnýju og Jóhann sem voru að kaupa sér nýja glæsikerru :) auðvitað Nissan Micru...
  • Ég komst að því að Panda sjónvarpið mitt er KÚL því að allar tölvurnar í BYKO eru í þessu merki...það eru nefnilega margir og ég sjálf búin að gera grín að þessu merki, en þetta er greinilega gott merki hehehe :) strákurinn í BYKO sagði meira að segja besta merkið, það er spurning :)
  • Magga, Dandi og Eyrún komu heim til landsins. Stelpurnar voru búnar að vera úti í 6 vikur á Tenerife í spænskuskóla, og Dandi var búinn að vera síðan, 3 janúar semsagt í 11 vikur útum allt og m.a. á Tyrklandi á skíðum. Þau voru held ég öll voða fegin að komast til Íslands, en leiðinlegt fyrir þau að innanlandsflugið lá niðri svo að þau komust ekki norður fyrr en daginn eftir...
  • Á mánudaginn verður liðið ár síðan ég leit Elvar augum í fyrsta sinn ;) en það stendur í stjörnumerkjabókinn sem ég er með hérna fyrir framan mig (hún heitir Spáðu í mig) að sannarlega hafi kviknað mikilfenglegur neisti þegar við hittumst fyrst ;) svo stendur hérna í annarri bók (Hvað segja stjörnumerkin um þig og þína) að ef einhver getur sigrað heiminn þá geti þetta par það, semsagt bogamaður og ljón :) miðað við allt það sem ég hef skoðað í stjörnuspeki að þá er bogamaður og ljón frábær samsetning og ég er mjög ánægð með það ;)

Jæja nú held ég að það sé komið nóg af bulli, en svona í lokin þá langar mig að benda ykkur á að inn á mbl.is er linkur inn á stjönuspeki og þar vinstra megin er linkur inn á stjörnukort. Þar getur maður keypt stjörnukort um sjálfan sig (þá þarf maður að vita hvenær, klukkan hvað og hvar maður fæddist) svo er einnig hægt að kaupa samskiptakort en þá setur maður sig og makann inn saman.
Hérna koma linkar inn á okkar:

Samskiptakortið : http://telenstar.com/mbl/files/008119-35201361/Stjornukort.pdf

Stjörnukort Elvar : http://telenstar.com/mbl/files/008121-35201361/Stjornukort.pdf

Stjörnukort Sigrún : http://telenstar.com/mbl/files/008122-35201361/Stjornukort.pdf 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 20:55:08 / sigrunae

Stekkjartún 17, 600 Akureyri

JIBBÝ JEY ;) já það er glatt á hjalla um þessar mundir :) við Elvar hættum við að kaupa gamla húsið á Árskógsandi og ákváðum frekar að kaupa okkur GLÆNÝJA 100 m2, 3ja herbergja íbúð inná Akureyri...Þrátt fyrir að ég hefði alveg verið til í að búa inn á sandi þá held ég að atvinnumöguleikar og félagsskapur sé í meira mæli á Akureyri...


Við erum semsagt búin að vera á milljón að gera greiðslumat, gera kauptilboð, fá íbúðarlán og síðast en ekki síst fórum við norður saman núna í byrjun vikunnar og skoðuðum íbúðina og aðrar eins íbúðir sem eru lengra á veg komnar!! Íbúðin er GEGGJAÐ flott...það eina sem ég hef útá hana að setja er að eldhússkáparnir ná ekki alveg upp í loft, vantar 45 sm uppá sem er eiginlega of mikið til að loka því með fölskum plötum í innréttingarlitnum!! En þessu verður reddað með ljósakappa og fölskum vegg eða eitthvað!! Í íbúðinni eru engir ofnar en í staðin er hiti í öllum gólfum sem er bara snilld!!

Ég er svo spennt að ég er að deyja!! þetta er nú búið að taka mjög mikla athygli frá skólanum en vonandi get ég tekið mig á og klárað þennan skóla með sóma...Það eru núna nákvæmlega 57 dagar í að við fáum íbúðina afhenda ;) sem verður semsagt á þeim góða degi 3. maí ;);)

Við erum búin að skoða flísar, húsgögn, heimilistæki og allan þennan pakka útí eitt þegar Elvar hefur komið í smá frí á sjónum, en það kemur annað slagið bræla hjá þessari elsku :) það er alltaf svo gott að fá hann...ég bara get ekki án hans verið, allavega alls ekki lengur en viku...Núna er maður farinn að sjá fyrir endann á þessari önn og bara æðislegir tímar framundan (vonandi..og efast ekki um það) hehe :)
Ég er búin að komast að því að ég gæti ekki verið heppnari með kærasta og tengdafjölskyldu...ég er bara í skýjunum :D það liggur við að ég sé farin að hringja oftar í tengdamömmu mína en mína eigin mömmu...

Það er líka allt á fullu í söfnuninni fyrir útskriftarferðinni sem verður til Marmaris á Tyrklandi 25 maí, en við Elvar ætlum að skella okkur í hana og vera í viku :) ég hlakka ekkert smá til svo getum við komið heim í nýju íbúðina og látið LÍFIÐ okkar saman taka við :D:D:D

Sigrún sem er að missa sig úr kæti kveður í bili ;)   


P.s. það er hægt að sjá myndir úr sambærilegri íbúð á þessari síðu: http://www.remax.is/popup/fasteign/38661/
Athugið samt að margt verður öðruvísi hjá okkur, t.d. gólfefnin og veggflísarnar inná baði verða mikið flottari hjá okkur ;) hehe


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 00:42:47 / sigrunae

Sakna Elvars svo mikið :(

Góða kvöldið ;)

Það er ekki eðlilegt að maður geti saknað einhverrar manneskju jafn mikið og ég sakna Elvars...mig langar bara að fara að stofna heimili með honum og koma mér fyrir með honum til frambúðar...er orðin ansi óþolinmóð :( ég ætla alltaf að vera voða dugleg að læra, en enda alltaf í því að skoða myndir af okkur, lesa gömul sms frá honum eða að senda honum sæt sms...

Það er ekkert grín að vera ástfanginn en, samt á maður að vera ánægður með það að hafa fundið ástina því það er nú ekki sjálfgefið...Elvar er alveg eins og uppskriftin mín af karlmanni...Ég er ástsjúk og ætla að enda þessa stuttu saknaðarbloggfærsu á einni mynd...Hún var tekin af okkur á Frönsku dögunum í sumar sem voru náttúrulega ÆÐI...Þetta var án efa BESTA ball sem ég hef farið á...

DSC06289_edited.jpg

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 23:57:41 / sigrunae

Árskógsandur...Djamm...

Tíminn gjörsamlega flýgur áfram á ákveðnum stundum, en á öðrum líður tíminn varla :( Ég er búin að komast að því að ég er manneskja sem er ekki ætlað að vera ein...og vá hvað ég þoli ekki Reykjavík...það eru allir svo uppteknir alltaf og leiðinlegir útí sínu horni og ég veit að ég er ekki undantekning þar á, enda loka ég mig eiginlega bara af...Þetta er allt öðruvísi þegar maður er útá landi og býr í stuttum radíus frá öllu og öllum...hérna í Reykjavík fellur maður bara inn í fjöldann og allir gleyma öllum, hugsa bara um sjálfan sig, enda ekki tími í annað...Ef ég hefði ekki Baðhúsið hérna við hliðina á mér væri ég 100% komin á þunglyndislyf, en ég hef það sem betur fer og var að spá í að flytja kannski bara aðsetrið mitt þangað á meðan ég klára skólann...Þetta er allavega orðið það heimilislegt hjá mér þarna að mér var lánaður bolur um daginn heim til að máta hann bara í rólegheitunum heima, en hún skráði það ekki einu sinni hjá sér heldur sagði hún: þú ert hvort sem er alltaf hérna og brosti ;) hehehehe

En Jesús hvað ég hlakka til að flytja héðan fyrir fullt og allt (nema ég á eftir að sakna Baðhússins) á lítinn stað þar sem allt er lítið og persónulegt!!

Ég fór norður fyrstu helgina í febrúar og var frá fimmtudegi til mánudags og það var algjör draumur...Enda nóg af yndislegu fólki í kringum mann allan daginn og gott að borða í öll mál ;) þeir sem þekkja mig vel vita hvað ég er mikið fyrir mat hehehe :D

En nóg af röfli...á föstudaginn var Hrönn svo yndisleg að bjóða mér í pizzu sem var geggjað góð ;) ég var hjá henni og Arnari eitthvað fram á kvöld og það var voða kósý hjá okkur...Um morguninn fór ég í ræktina, en eftir það komu Freyja og Hafdís að sækja mig...Við fórum í Kringluna og engin okkar kom tómhent þaðan út...enda ekki hægt þar sem það er allt morandi í flottum vörum núna að mínu mati allavega...Við fórum svo í ljós og loks heim til Freyju að græja okkur og djúsa...Það var ekkert smá gaman hjá okkur og Hafdísi mixer master tókst að stúta bæði töfrasprotanum og mixernum hennar Freyju sem hefur greinilega hvorugt þolað svona mikla klaka og frosin jarðaber...hehehe

Hérna kemur ein geggjað flott mynd af Hafdísi og Freyju ;) 

016_edited.jpg


Þær voru og eru ;) semsagt ekkert smá fínar og sætar...
Takk æðislega fyrir djammið stelpur mínar...
Freyja á líka fleiri myndir inná
www.123.is/freyz:)

Svo eru mágkona mín, hún Margrét og vinkona hennar, Eyrún úti núna á Tenerife í spænskuskóla í 6. vikur...Ekkert smá gaman hjá þeim og þær eru strax búnar að setja inn myndir...en þær fóru út á fimmtudaginn :) þær komu einmitt við hjá mér og ég bauð þeim í ljós og heita pottinn í Baðhúsinu sem þeim fannst vonandi nice :) þær eru með síðu: www.blog.central.is/tenerife07
Jæja ég verð að fara að sofa...blogga meira næst elskurnar ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 00:33:18 / sigrunae

Nýtt ár...Kanarý...Einvera!!

Jæja þá er alldeilis kominn tími á að blogga...ég er orðin svo hrikalega léleg við þetta úfff...Eeen ég átti eftir að segja gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar ;) og takk fyrir öll gömlu góður...maður er að verða alltof gamall :S En hvað um það...lífið er samt alltaf jafn skemmtilegt ef maður er bara jákvæður ;) Ég ætla að fara yfir það í grófum dráttum sem gerðist í mínu lífi á árinu sem leið fyrir 29 dögum (hehemm)

  • Byrjaði með ástinni minni honum Elvari sem er auðvitað það allra besta sem hefur komið fyrir mig..

  • Fór í fyrsta skiptið á ævinni til bæði Hríseyjar og á Árskógsand þar sem ég á eftir að búa :)

  • Vann í frystihúsinu á Fáskrúðsfirði allt sumarið með Ómari "litla" bróðir ;)

  • Bjó með Elvari í 18 m2 herbergi alla haustönnina sem gekk eins og í sögu þrátt fyrir plássleysi

  • Fór að selja Tupperware

  • Kvaddi Gautavíkina mína heittelskuðu

  • Varð ljóshærð í fyrsta skipti á ævinni

  • Eyddi áramótunum með æðislegu tengdafjölskyldunni minni heima á sandinum...

  • Og fullt fullt af öðrum hlutum í viðbót sem ég nenni ekki að telja upp hér og nú...

Hér kemur ein áramótamynd af okkur Elvari ;)

 Jlafr2006056_edited.jpg

Eftir að hafa eytt áramótunum á Árskógsandi sem var æði fórum við Elvar á nýárskvöld suður til Reykjavíkur...2. janúar fórum við til pabba í mat og svo um nóttina útá Keflavíkurflugvöll til að fara til KANARÝ...Við lentum þar í hádeginu 3. janúar...Við fórum 10 saman, 6 strákar og 4 stelpur...Þetta var í einu orði sagt frábært og ekki skemmdi það fyrir að ég gat djammað með Guðnýju, Jóhanni, Önnu og Dóra síðasta kvöldið...þau voru hress að vanda og við skemmtum okkur konunglega ;) Við vorum mjög heppin bæði með hótel og veður þarna úti, en allt var innifalið á þessu hóteli...Það þýddi það að maður gat fengið sér nákvæmlega allt það áfengi sem manni langaði í og borðað frábæran mat án þess að borga krónu fyrir :D Þvílík SNILLD!! Við fórum í dýragarð, vatnagarð, stóra verslunarmiðstöð, tívolí og margt fleira...Ég mæli svo með því að fara til Kanarý á þessum tíma árs og stytta veturinn aðeins, ég hefði svo verið til í að vera í 2 vikur :(
Hérna er mynd af útskriftarhópnum sem vann fyrir þessari ferð: Elvar, Hjörtur, Siggi, Raggi og Eyjólfur: 

Kanar3-10janar2007147.jpg

Hérna kemur svo mynd af okkur skvísunum sem eru frá vinstri Erna hans Ragga, Elma hans Sigga, Cris hans Hjartar og svo ég stelpan hans Elvars ;)

Kanar3-10janar2007225.jpg

Eftir Kanarý ferðina fór Elvar næstum strax norður á sjó, en tengdamamma kom í bæinn með vinkonu sinni í viku ferð daginn sem við komum að utan svo ég var bara með henni :D það var voða fínt og ég sá loksins systir hennar sem bauð okkur tvisvar í æðislegan mat...En eftir að tengdamamma fór norður byrjaði skólinn og einsemdarlífið hjá mér 8| Síðustu helgi bauð pabbi mér svo með honum og Hröbbu norður í helgarferð og ég skellti mér auðvitað með...Pabbi og Hrabba borðuðu svo læri og fínerí hjá tengdó :D Núna er skólinn byrjaður á fullu og ég þarf að fara að koma mér í gang..en það gengur eikkað erfiðlega núna...Ég er að sjálfsögðu líka komin í átak eftir allt sukkið um jólin og svo úti...já það er ekki jákvætt þegar maður fer að finna það hversu buxurnar eru orðnar þröngar!

Núna á föstudaginn var Bingó upp í Kennó og Guðný og Marý komu með mér...það var geggjað fjör hjá okkur, Marý vann fyrsta vinninginn sem var ljósakort hjá Sælunni, en svo vann ég tvisvar :D ég vann tvo boli, einn er svona sparilegur en hinn er Casall bolur í ræktina...algjör snilld ;) ég smellpassaði í þá báða og er alsæl þar sem ég hef ekki efni á að versla mér á útsölunum núna í ár ;) En það er semsagt ákveðið að útskriftarhópurinn minn er að fara til Marmaris á Tyrklandi 25 maí til 1 júní og ég hlakka svooo til...Eftir það bíða svo bara spennandi tímar og vonandi aldrei aftur svona mikil einvera!! :$
Ég ætla að reyna að setja einhverjar myndir inn á myndasíðuna frá Kanarý og áramótunum ef ég get Kannski fæ ég mér svo nýja síðu, jafnvel á 123.is svo að ég nenni að blogga oftar, en ég er komin með alveg upp í kok af blog.central!! Ég kveð núna í bili...ætla að fara upp í rúm og knúsa hjartakoddann minn yfir eikkerjum stelpuþætti...
Kveðja Sigrún Ágústa sem saknar Elvars alltof MIKIÐ :(


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 21:43:12 / sigrunae

Gleðileg jól allir!!

Vá það er orðið langt síðan ég skrifaði síðast!! Ég veit eiginlega ekki alveg ástæðuna fyrir því, en t.d. bilaði tölvan mín :( Núna er aðeins ein önn eftir hjá mér í Kennó sem er auðvitað bara snilld...pabbi og Hrafnhildur eru komin í húsið sitt í Hveragerði (strax í byrjun nóvember) og VÁÁÁ hvað þetta er orðið flott hjá þeim...Um leið og ég kláraði próf og öll verkefnin nema eitt fór ég austur, eða þann 17 des og vann í frystihúsinu og þrifunum alla þá viku...þar náði ég að vinna í 76 klukkustundir á 5 dögum úfff...Elvar minn kom svo til mín á Þorláksmessu með alla flottustu pakkana :D það var ekkert smá frábært að hann skyldi koma þessi elska...Lárus kom líka svo það var fjölmennt hérna á heimilinu og brjálað stuð!!! :)

Í jólagjöf fékk ég m.a. náttbuxur, boli, nærföt, peysu, stígvél, i-trip fyrir i-podinn, gler myndaramma fyrir 3 myndir(mynd af mér og Elvari í miðjunni og svo sitt hvoru barninu hehehehe) ilmvatn, body lotion og shower gel...svo fengum við Elvar alls konar sameiginlega pakka sem innihéldu eitthvað flott í búið, t.d. vatnstarínu, vatnsglös, bollastell, stál skál, stál kertastjaka, skálar, irish coffee glös, bjórglös, staup og fleira... Núna er 27. des, en ekki á morgun heldur hinn fer ég í jarðaförina hans afa :( og í beinu framhaldi af henni fer ég norður á Árskógsand, en ég fæ far með systir pabba sem býr á Akureyri...Ég ætla að vera fyrir norðan yfir áramótin og svo verður það KANARÝ eftir nákvæmlega viku...eða 3ja janúar :D:D:D:D ég er svo spennt að ég er að farast...

Annars er frekar lítið að frétta nema það að Elvar þurfti að fara frá mér norður í gær og svo suður því hann, afi hans, pabbi og 2 frændur fóru að sækja nýja bátinn sem útgerðin þeirra var að láta smíða fyrir sig...nákvæmlega núna eru þeir að sigla útúr Hafnafjarðarhöfn og verða um sólarhring á leiðinni norður á Árskógsand...Þar að segja ef það verður ekki bræla, en það er ekkert rosalega gott útlit fyrir veðrið :/ En þar sem ég hafði allt of mikið að gera fyrir jólin og sendi því miður engin jólakort þetta árið vil ég enda þetta á að segja:

Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár og takk fyrir öll gömlu góðu árin...Vonandi hitti ég ykkur sem flest á hinu nýja og frábæra ári 2007 :D en það verður sko ár viðburðanna...allavega í mínu lífi...vonandi útskrift í vor, 2 útskriftaferðir, flyt í nýja húsið fyrir norðan og þarf ekki að læra fyrir næstu jól svo að þá ætla ég að sko að senda öllum sem mér þykir vænt um jólakort :D:D Guð blessi ykkur Jóla- og áramótakveðja Sigrún Ágústa :*


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 18:26:43 / sigrunae

Austurlandið og vettvangsnám

Góðan daginn gott fólk!!
Ég veit að ég hef ekki verið að standa mig í blogglífinu, en það eru ákveðnar ástæður fyrir því...
Ég er búin að vera fyrir austan síðustu 2 helgarnar, fyrri helgina fórum við Elvar saman og skelltum okkur á ball með Á móti sól á Fáskrúðsfirði...ég vil nú ekki tala mikið um það ball þar sem ástandið á mér var ekkert allt of gott á því :S ég var allt of drukkin sjitt...ég var bara upp við sviðið allan tímann og enginn gat náð sambandi við mig...ekki einu sinni mamma eða Elvar úfff :$ ég hef mikið hugleytt að hætta að drekka eftir þessa helgi hehe...Það var samt rosa gaman þessa helgi þar sem ég, Elvar, Lárus, Ómar og Karen vorum öll í kotinu hjá mömmu :D og ég skemmti mér víst líka rosa vel á ballinu, en væri alveg til í að muna eikkað eftir því :S
Síðustu helgi fór ég svo austur til að ganga frá öllu dótinu mínu í Gautavík þar sem pabbi er búinn að selja sveitina mína uhuhu :cry: það var ekkert smá sorglegt og sem betur fer hafði ég Karen og Bergþór mér til aðstoðar við þetta allt saman...ég endaði samt með því að henda flest öllu af því sem ég fann, pakkaði samt í 4 frekar stóra kassa af dóti sem mig langar að eiga...Við Karen skemmtum okkur konunglega við að fara í gegnum öll gömlu fötin og við dressuðum okkur upp og tókum myndir sem ég á eftir að fá hjá pabba hehehehe :D maður veltir því oft fyrir sér hvað tískan í gamla daga var HRIKALEG...allavega fundum við ansi margt sem við stórefumst um að komi aftur í tísku...Elvar fór norður þessa helgi og mældi húsið okkar hátt og lágt :D svo talaði ég við Þorstein bróðir um þetta allt þar sem hann er húsasmíðameistari með sitt eigið fyrirtæki og hann ætlar að redda okkur ÖLLU í húsið á góðum dílum, þ.e. öllum innréttingum, gólfefnum (flísar og parket) og fleiru, t.d. fataskápum, náttborðum og borðum...SNILLDIN ein þá sleppur maður við að flakka milli búða að finna bestu dílana hér og þar...Við erum orðin ofur spennt og erum búin að ákveða nákvæmlega hvernig eldhúsinnréttingin á að vera þökk sé hinu góða IKEA forriti :D algjört snilldarforrit...maður getur meirað segja séð innréttingarnar í 3 vídd...

Annars er það bara að frétta að ég er á fullu í vettvangsnámi...það hófst 16 okt og er í 5 vikur svo það er nóg að gera hjá mér...Ég og Unnur sem er með mér í Kennó erum saman og verðum að kenna 8-9 bekk eðlis- og efnafræði í Réttarholtsskóla...Þetta er búið að ganga mjög vel hingað til og okkur lýst bara voða vel á krakkana :D

Hafiði það gott elskurnar :D set inn myndir seinna...Kveðja Sigrún upptekna :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 17:16:56 / sigrunae

Afmæli aldarinnar, rólegheit og norðurlandið

Já ég er búin að komast að því að það hentar mér betur að blogga sjaldnar, en segja meira í einu J Fyrst langar mig að segja að það er núna búið að ganga frá Kanarýferðinni og við verðum á Hotel Eugenia Victoria... og mér lýst rosa vel á það...hérna er hægt að sjá myndir af því: http://beach.es/en/accommodation/83_eugenia_victoria_gran_canaria/?gclid=CIrfqOrRy4cCFQMqNAodxFI1LQ


9. september fór ég í flottasta afmæli sem ég hef nokkurn tíman farið í, en þetta var 30 ára afmæli Jens hennar Kollu minnar...Þau voru með 3 bústaði leigða rétt hjá Flúðum, en einn þeirra var partýbústaður ;) Það fengu allir LOST IN ICELAND bol sem Kolla og Jens létu gera spes fyrir þetta afmæli...ekkert smá flott hjá þeim...Maturinn var frábær, þau grilluðu lambafille, svínafille og fisk og með þessu var allt það meðlæti sem þig gat langaði í namminamm...Áfengistegundirnar voru svooo margar að maður vissi varla hvað maður átti að fá sér...Svo skemmdi nú heiti potturinn ekki fyrir, en þar voru nokkrir í meira en 2 klst og ég lét mig auðvitað ekki vanta í pottapartýið :D :D Hérna er hægt að sjá myndir úr þessu frábæra afmæli: http://bullukolla.blog.is/album/JensBirthday/


Helgin 15-17 september var nú ekkert merkileg, við Elvar kíktum samt aðeins á djammið á laugardeginu...En sunnudagurinn var bestur, enda kúrudagur ahhhh Jþað er svo notalegt...

En núna síðasta föstudag skelltum við okkur norður í samfloti með Vigga sem kom á Micrunni minni norður...Hann þurfti að komast norður og við nýttum ferðina til að koma öllum innbúskössunum mínum norður í húsið okkar...Micran hélt alveg fáránlega vel í við okkur þrátt fyrir að við værum á BMW-inum :D það sannaðist í þessari ferð hvað Micran er mikill kaggi hehehe :D Þegar við komum heim á Árskógsand beið okkar matur og hornbaðið beið okkar sérlega mikið ;) ég gat loksins notað súkkulaðifreyðibaðið sem Karen og Ómar gáfu mér í afmælisgjöf...algjör snilld og geggjað góð lykt af þessu :D
Á laugardeginum hélt ég svaka góða TUPPERWARE kynningu hjá tengdó og seldi alveg heila helling af vörum...;) Um kvöldið fórum við Elvar upp í nýju bruggverksmiðjuna á Sandinum sem opnar næstu helgi og er að framleiða bjór sem heitir KALDI...ekkert smá góður bjór *slef* og ég sem drekk varla bjór
J Eftir það skelltum við okkur til Akureyrar og kíktum m.a. á hana Herdísi mína sem fór alveg á kostum og lét okkur hlæja nánast allan tímann...hehe :D ekkert smá gaman að henni í svona stuði ;)
Á sunnudaginn var svo mikil blíða að við fórum út á rúntinn, Elvar sýndi mér nokkra flotta staði í kring hjá sveitunum, við fórum í berjamó (ég át yfir mig hehehe) og í göngutúr..eftir að hafa svo farið heim og fengið kökur og mjólk fórum við á spíttbát yfir í Hrísey og til baka sem var geggjað gaman :D ekkert smá gaman í svona góðu veðri...
Ég má ekki gleyma því að ég sá húsið okkar í fyrsta skipti og leist líka svona svakalega vel á það...Það þarf auðvitað að gera alveg helling fyrir það, en það verður rosalega gaman að laga það eftir sínu höfði og gera það flott...
Hérna kemur ein mynd af höllinni ;) við eigum að sjálfsögðu eftir að klæða það, laga þakið, handriðið og svo margt annað :haha:
rskgsandurhelgina22-25sept-1.jpg

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 02:26:59 / sigrunae

Löngu tímabært að blogga ;)

Þá held ég að sé kominn tími fyrir litla færslu hérðan úr Ástarhreiðrinu á Höfða eins og herbergið okkar Elvars er kallað ;) hehe mig langar að búa til lítið yfirlit yfir það sem hefur á daga okkar drifið síðan ég skrifaði síðustu færslu:

19 ágúst - Fór í 1 árs afmælisveislu Marteins Mána, en veislan var haldin svona löngu fyrir afmælið hans því Lárus bróðir var að fara útá sjó í mánuð. En Marteinn á afmæli núna á fimmtudaginn 7. sept.
20 ágúst - Elvar minn kom loksins til mín í bæinn ;) endalaus hamingja yfir því :)
21 ágúst - Skólinn byrjaði á fullu og ég er ekki enn komin í gang :(
22 ágúst - Ómar bróðir minn varð 17 ára 8)
23 ágúst - Við Elvar staðfestum kaup á húsi á Ársskógsandi sem afi hans átti...við munum gera það upp og flytja í það eftir að við klárum námið...hentar mér mjög vel þar sem það vantar mjög kennara þarna...auk þess er Dalvík 7 mín frá, Akureyri um 30 mín frá og ekki má gleyma hinni fögru Hrísey sem er 5 mín frá ef við förum á hraðbátnum hans Elvars :)
26 ágúst - Ég, Elvar, Hrönn og Arnar fórum út að borða á Ítalíu, heim á Höfða að drekka og svo á djammið...Það var mjööög gaman enda góð tilbreyting að eiga kærasta sem hægt er að skemmta sér með :haha:
28 ágúst - Elvar keypti sér geggjað flottan BMW 325, silfurgráan með nánast öllum aukabúnaði, 2001 árgerð...8) svaka töffari...
30 ágúst - Byrjaði í ræktinni og ekki veitir af að vera dugleg þar :)
31 ágúst-1 sept Var í vörutalningum hjá 10-11 bæði dag og nótt, Sigga Evan mín var með mér á nóttinni að telja...þvílíkur munur að hafa hana :)
3 sept - Við Elvar fórum í Bláa Lónið sem var GEGGJAÐ og við förum sko pottþétt þangað aftur áður en langt um líður...Við fengum líka frábært veður ummm...þetta var yndislegt :D
4 sept - Elvar fór norður og austur í dag til að taka einn auka túr á Ljósafellinu þar sem það vantaði stýrimann...:cry: sem betur fer verður hann bara í viku í burtu frá mér...
5 sept - Pabbi tilkynnti mér það að hann er líklegast að selja Gautavíkina okkar og er að koma suður um helgina að skoða hús á Hveragerði með konu sem hann er orðinn ástfanginn af...:haha: þetta er náttla bara gott fyrir hann...ómögulegt fyrir hann að hanga í sveitinni og vinna baki brotnu alla daga á þessum aldri...það verður samt rosalega erfitt að kveðja Gautavíkina :cry:
6 sept - Útskriftarhópurinn hans Elvars (5 strákar og kærustur þeirra) bókaði ferð til Kanarýeyja 3-10 janúar 2007 á mjög flottu hóteli ;) VÁ HVAÐ ÉG ER SPENNT þar sem ég hef aldrei komið á sólarströnd á ævinni...

Ég held svei mér þá að það sé ekkert meira að frétta úr ástarhreiðrinu í þetta skiptið...mig langar að enda þetta á einni lítilli mynd af okkur skötunum sem tekin var í Hrísey í sumar...


Elvar og Sigrún


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 23:49:04 / sigrunae

Góðir vinir eru ómetanlegir :)

LOKSINS ER ÉG FLUTT ÚR BÓLSTAÐARHLÍÐINNI Í HERBERGIÐ MITT Á HÓTEL HÖFÐA Í SKIPHOLTINU :haha:
Tíminn líður svooo hratt og allt tekur enda sem hefur bæði kosti og galla...núna er ég komin í herbergið mitt á Höfða sem ég mun búa í þangað til ég verð útskrifuð sem kennari...Allt dótið mitt er komið inní eitt 18 fermetra herbergi :) hehe það er nú soldið troðið eins og er, en ég losna vonandi fljótlega við allt auka dót...TAKK FYRIR ALLA HJÁLPINA ELSKU HRÖNN, ARNAR OG FREYJA...hvar væri ég án ykkar...þúsund kossar ;* þau eru búin að hjálpa mér svoo mikið alveg síðan á máundaginn...já þau eru æði og þeim verður sko boðið í bústað fyrir alla hjálpina :)...en annars mæli ég ekki með því að fara úr frekar stóru húsnæði yfir í minna, hvað þá eitt herbergi nema þið hafið góða geymslu í nánd!!...það krefst allavega mikillar vinnu...einn kostur við það er reyndar að þá drullast maður loksins til að henda alls konar drasli sem maður hefur haldið uppá alltof lengi...hehe :D Núna er ég bara að bíða eftir að Elvar komi til mín...en hann kemur ekki fyrr en á sunnudaginn...
Endilega allir sem vilja koma og sjá herbergið mitt hafið samband og kíkið á mig ;) ég þigg alltaf félagsskap hehe :haha:
-Sigrún Höfðapæ-


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 13:18:40 / sigrunae

Versló + afmæli ;)

Nú er kominn tími á að skrifa nokkrar línur...úfff ég er allt of löt við þetta...hehe :D en ég ætla að segja aðeins frá verslunarmannahelginni sem var frábær...Hrönn og Arnar komu úr Reykjavík til að koma á Neistaflug á Norfirði og þau pikkuðu mig upp á Fásk...Við 3 fengum að gista á efri hæðinni hjá ömmu og afa hennar Siggu Evu og Sigga Eva og Nína vinkona hennar voru niðri...Algjör snilld að við vorum öll í sama húsinu ;) Föstudagurinn var tekinn með trompi og við fórum öll á ball með þeim í Svörtum fötum...algjör snilld :) Þeir standa alltaf fyrir sínu...Á laugardeginum fórum við öll útí Vöðlavík sem er geggjað flottur staður innan við Eskifjörð...já þessi vegur að Vöðlavík er sko ekki fyrir hvernig bíla sem er...en staðurinn er svooo fallegur að það er sko þess virði að hossast aðeins ;) þar var öll familían Hrannar og Siggu Evu að halda upp á afmæli litla frænda þeirra í sól og blíðu...við fengum kökur, láum í sólbaði, fórum í heita pottinn og fengum læri og tilheyrandi í kvöldmat namminamm ;) þetta var yndislegt ;) við fórum svo aftur yfir á Norðfjörð um kvöldið og tókum því nú bara rólega þetta kvöld, þ.e. við gamla fólkið ég, Hrönn og Arnar hehehe 8) aftur á móti tjúttuðu þær stöllur Sigga og Nína eins og þeim einum er lagið ;) Sunnudagskvöldið var svo tekið heldur betur með meira trompi en föstudagskvöldið, þá var brekkusöngur og fjör í bænum og eftir það ball með SÁLINNI...úfff þeir eru svooo góðir...Ég fór svo heim á Fásk frekar þunn og mygluð á mánudeginum og Elvarinn minn kom í land um kvöldið :D yndislegt að fá hann loksins...ömurlegt að hafa hann útá sjó yfir versló :( en svona er þetta að eiga sjómann það fylgja því bæði kostir og gallar!! Afmælin hafa verið að hellast yfir upp á síðkastið...Pálmar átti afmæli 6. ágúst, mamma 8. ágúst og svo ég 9. ágúst....Þannig að við héldum svaka afmælisveislu þann 8 sem var mjög gaman ;) ég fékk rosa flotta peysu frá Elvari, puntudót og slatta af pening m.a. frá mömmu :) svo ég get vonandi keypt mér eikkað flott þegar ég kem í bæinn...Ég vann svo seinast vinnudaginn minn föstudaginn 11. ágúst og fór í sveitina til pabba með Karen og Ómari, en Lárus, Jenný og Marteinn eru hérna líka svo það er búið að vera svaka fjör og allt brjálað að gera í heyskap...Núna er ég að fara suður með flugi eftir um tvo tíma og byrja að flytja og koma mér fyrir í herberginu á Höfða...Það verður æði þegar þetta helvíti verður búið ;) svo vona ég bara að Elvar skili sér af sjónum á föstudaginn svo hann geti komið með mér í 1 árs afmælisveisluna hans Marteins Mána á laugardaginn...;) ég kveð í bili...
-Sigrún sveitapía-


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 23:14:50 / sigrunae

Sumarfrí ;)

Vá núna er ég búin að upplifa 11 bestu daga ævi minnar...ég ætla að rekja upp í grófum dráttum hvað ég hef verið að bardúsa síðan ég komst í sumarfrí 21 júlí...Ég var að vinna til að verða tíu um kvöldið þann dag og Elvar kom til mín rétt yfir tíu að sækja mig ;) við ákváðum þó að gista hérna þá nótt því ég var svo þreytt eftir daginn...Lárus og Jenný voru hérna og við vorum að spjalla við þau eikkað frameftir...Við vorum svo eldhress morguninn eftir að við lögðum af stað kl 8 norður...Það var frábært veður á leiðinni og vá hvað maður komst loksins í sumargírinn 8) Ég fór í klippingu og litun á Akureyri um leið og við komum inn í bæinn...ekki gat ég farið með rót niðrá eyru til tengdó hehe :D en sjitt hvað þetta var dýrt 10.800 krónur 8| úfff...eins gott að maður hafi Marý að fyrir sunnan hehe :haha: Tengdamamma (sem er án efa besta kona sem ég hef kynnst) var svo tilbúin með hlaðborð úti í garði af alls konar kræsingum í frábæru veðri, sól og steik...Litla systir hans hún Aníta Rut sem er að verða 3ja ára tók mér opnum og við urðum strax bestu vinkonur :D hún kallar Elvar Bella og mig Síúnu hehe 8| hún er mesta krútt í heimi...Hérna kemur ein mynd af sætu sætu Anítu:

Aníta Rut

Um kvöldið fórum við Elvar ásamt Margréti 18 ára systur hans og fleirum útí Hrísey...Lára Björg frækna kom svo seinna um kvöldið þannig að við eigum fullt af myndum frá þessu kvöldi ;) hehe Ég hitti fullt af frændfólki Elvars og allir voru á voða trúnó við mig hvað ég væri búin að ná mér í pottþéttan strák og allt það sem ég veit að er alveg satt :D :haha: Þrátt fyrir frábært kvöld og nótt útí Hrísey var gott að komast heim í stóra flotta hornbaðið heima hjá Elvari ahhhh...með nuddi, hauspúðum og alles...ég held að þetta sé algjört möst að eiga svona í framtíðinni, þetta er algjör snilld...!!
Við tókum okkur rúnt á Dalvík og Ólafsfjörð en þangað hef ég aldrei komið áður...við fórum svo frá þessum æðislega stað, Árskógströnd á þriðjudeginum, en þá fórum við í ferðalag með nýtt tjald og fínerí...Ferðinni var fyrst heitið í Ásbyrgi þar sem við tjölduðum tjaldinu, fengum 3 vini Elvars í heimsókn, grilluðum og drukkum bjór í frábæru veðri ahhh...8) daginn eftir vorum við Elvar eins og algjörir túristar og löbbuðum um allt svæðið með myndavél um hálsinn og nesti hehe :D Við héldum svo áfram för okkar í Atlavík eftir allt labbið í sól og steik og stoppuðum t.d. í Kröflu...Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir í víkinni löbbuðum við þar um allt eikkað fram eftir nóttu sem var yndislegt...Daginn eftir fórum við á hjólabáta og dunduðum okkur eikkað frameftir degi...Vorum svo komin passlega í "Kenderíisgönguna" heima á Fásk. sem er upphaf FRANSKRA DAGA :haha: Við fórum svo niðrá Sumarlínu og heim í partý á eftir þar sem útvaldir aðilar voru :D eeen kvöldið endaði á því að ég drapst eftir 3 opalskot og þann viðbjóð drekk ég sko aldrei aftur :evil:
Föstudagurinn var rólegur framan af, en svo komu Hrönn og Arnar til okkar um kvöldið ásamt fullt af öðru fólki sem kom hingað, t.d. Karen og 2 vinkonur hennar...Við fórum öll saman á brennuna og brekkusönginn sem var frábær...Um kvöldið var það svo hótelið sem var mjög fínt...Á laugardeginum var partý hérna heima eins og venjulega og eftir það ball sem var í einu orði sagt FRÁBÆRT :D Það var alveg troðið af fólki og Þorsteinn bróðir var þarna blinfullur, sveittur að dansa sem var mjööög fyndið hehe...en við Elvar dönsuðum nánast allt ballið...frábært að eiga svona góðan dansfélaga :haha: OJ samt hvað það var heitt þarna inná dansgólfi maður fór alveg þvílíkt sveittur út í grenjandi rigningu og labbaði þannig heim...Því var ferðinni beint heitið í sturtu eftir heimkomu já og svo var það náttla samloka á eftir hehe :D
Sunnudagurinn var meira og minna leti, en við keyrðum Ómari á Neskaupsstað að keppa í fótbolta um kvöldið þar sem hans lið skíttapaði 9-1 æji greyin tíhí...Mándagurinn var kósý dagur...enda rigning úti og uppsöfnuð þreyta í manni...Elvar minn fór svo á sjó í gær sem var ömurlegt, en svona er lífið...Ég fór svo í sund áðan á Eskifjörð með mömmu, Láru og litlu strákunum ahhh hvað það var notalegt og afslappandi...Á morgun verður svo vinna hjá mér og svo er komin verslunarmannahelgi...Spurning hvað maður gerir, ég held samt að Neistaflug sé málið í ár :haha: allavega ekki Þjóðhátíð í skítaveðrið hehe ojojoj þar verður rigning og rok alla helgina múhahahaha...
Þá er ritgerðin á enda og ég ætla að fara að senda henni Kareni minni myndir af Frönskum dögum...Love, Sigrún Ágústa


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 19:53:45 / sigrunae

Hún á afmæli í dag...;)

Góðan daginn ;) ég vil byrja á að óska henni Aðalbjörgu Ýrr minni til hamingju með 7 ára afmælið :haha: já það er ótrúlegt að hugsa sér það að það séu 7 ár síðan ég hoppaði hæð mína af kæti yfir því að það væri loksins komin lítil stelpa í þessa fjölskyldu :D Hún Aðalbjörg er og hefur ALLTAF verið æðislegt barn og vá hvað ég elska hana mikið :P Ég fór í frábæra afmælisveislu til hennar á laugardaginn var...en hún hélt uppá afmælið sitt þá fyrir fjölskylduna ;) ummm...ég dýrka hvað hún Helga mín gerir góða heita rétti :D auðvitað kökur líka, en ég er meira í hinni deildinni ;) takk kærlega fyrir mig bara :haha: ég vil setja eina mynd af okkur frænkunum hérna og þess má geta að ég gaf henni peysuna sem hún er í á myndinni á afmælisgjöf :D smellpassaði líka svona vel ;)

Aðalbjörg og Sigrún Ágústa

Um kvöldið skellti ég mér á "Stöð í Stöð" á Stöðvarfirði og hitt þar allar frábæru stelpurnar þaðan á mínum aldri...Alltaf gaman að hitta Lilju, Öldu, Tinnu, Önnu Kristínu, Önnu Dögg og Kristel ;) þær eru allar æði ;) það var mjög fjölmennt á ballinu og bara hörku stuð...mín varð soldið vel drukkin, enda hvítvínsflaskan fljót að klárast :hehe:
Núna eru bara 3 vinnudagar eftir og svo fer ég í ferðalag með Elvari í heila viku :D get ekki beðið ;) Hafiði það gott elsku krúttin mín ;*
-Sigrún Ágústa-


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan